23.12.2011 16:52

Gleðileg jól



Kæru félagar.
Hundaræktunarfélagið Rex sendir félagsmönnum sínum 
bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Hlökkum til að sjá ykkur öll á nýju ári.

---------------

Nýtt ár mun byrja með krafti en aðalfundur félagsins verður haldinn 16.janúar kl. 20 í Plastprent húsinu að Fosshálsi 17-25 í Reykjavík.
Dagskrá fundar:
Venjuleg aðalfundar störf.
Aðrar umræður.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta á aðalfundinn en hann er einnig góður vettfangur til að viðra ykkar hugmyndir í öðrum umræðum.

Í mars er svo vorsýning félagsins og opnast fyrir skráningu strax eftir jólafrí skrifstofunnar. Sýningin verður helgina 17. og 18. mars.

Terrierdeild Rex

16.12.2011 19:07

Nýtt Silky Terrier got

Þann 15. desember komu í heiminn 3 rakkar undan Töru og ISCH Hraunprýðis Eldi.
Báðir foreldrar eru fríir af hnéskeljalosi og eru heilsuhraust.
Tara var sýnd á vorsýningunni í ár og hlaut 1.einkunn. Eldur er íslenskur meistari og vantar bara eitt stig í alþjóðlegan meistara. Á seinustu sýningu var hann besti hundur tegundar og hlaut 4.sætið um besta hund sýningar.
Frekari upplýsingar gefur tengiliður á netfanginu terrier@rexhundar.is 

    Flettingar í dag: 30
    Gestir í dag: 12
    Flettingar í gær: 57
    Gestir í gær: 14
    Samtals flettingar: 60867
    Samtals gestir: 18723
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 11:18:34