Færslur: 2012 Febrúar

17.02.2012 19:07

Silky Terrier got fætt 12.2.2012

Nýtt Silky Terrier got fæddist 12.febrúar hjá Hraunprýðis ræktun.
Komu 5 hvolpar, 4 rakkar og 1 tík.
Foreldrar eru Hraunprýðis Narnía Eik og Dalsmynnis Tamlin.
Bæði eru foreldrarnir heilsuhraust og frí af hnéskeljalosi. Bæði eru þau skapgóð og hafa bæði verið sýnd með 1.einkunn. Á haust sýningunni 2011 var Narnía besta tíkin og var annar besti hundur tegundar á eftir Hraunprýðis Eldi.
Frekari upplýsingar veitir ræktandi á mailið hraunprydis@gmail.com
----------------------------


Þessir Silky Terrier strákar, sem fæddir eru 15.desember 2011, eru í heimilisleit.
Foreldrar þeirra eru Tara og ISCH Hraunprýðis Eldur.
Báðir foreldrar eru skapgóðir, heilsuhraustir og laus við hnéskeljalos. Bæði hafa verið sýnd með 1.einkunn og var Eldur besti hundur tegundar á haustsýningunni 2011 og endaði í fjórða sæti um besta hund sýningar.
Frekari upplýsingar veitir ræktandi í síma 696-9744

10.02.2012 09:54

Heilsufarskröfur, sýning og fleira

Gleðilegt ár kæru terriereigendur.

Árið hjá Rex fór af stað með krafti en haldinn var aðalfundur 16.janúar síðastliðinn.

Aðalfundur félagsins fór fram í húsnæði Plastprent í Reykjavík 16.janúar síðastliðinn. Dagskrá fundar voru venjuleg aðalfundarstörf og aðrar umræður sem.
Á aðalfundinum kom fram að líkt og félögin sem Rex er í samstarfi við er Chinese Crested sýndur saman óháð feldgerðinni.
Einnig var rætt um leifða liti í Miniature Pincher og líkt og samstarfs félögin var ákveðið að black og tan og red eru þeir litir sem eru leifðir samkvæmt staðli.
Chocolate & tan hefur enn ekki fengið samþykki en er það víst allt til skoðunar erlendis.
-------------------------------

Á stjórnarfundi sem haldinn var 1.febrúar síðast liðinn voru augnskoðanir samþykktar hjá félaginu fyrir nokkrar tegundir. Af terrier hundunum er Rat Terrier sá eini sem þarf að gangast undir þessa skoðun.

Frá og með 1.febrúar 2012 þarf að augnskoða nokkrar hundategundir fyrir ræktun.
Nánari upplýsingar er að finna undir heilsufarskröfum eða hér
-----------------------

Kominn er nýr hundur undir Silky Terrier rakkar til reiðu og er það Hraunprýðis Fífill. Nánar á rakkalistanum hér til hliðar.

-----------------------
Væntanlegt got hjá Hraunprýðis ræktun undan Hraunprýðis Narníu Eik og Dalsmynnis Tamlin.
Narnaí var annar besti hundur tegundar á sýningunni í október og er frí af losi. Tamlin hefur verið sýndur með 1.einkunn, er heilsuhraustur og stenst allar kröfur með sóma.
Frekari upplýsingar veitir ræktandi á mailið hraunprydis@gmail.com 

-----------------------

Svo er bara að skella á sýning.

Skráning á sýninguna, sem haldinn verður 17.-18.mars 2012, er hafin.
Sýningin fer fram í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. 
Dómari á þessari sýningu er Jonny Anderson frá Írlandi.
Seinasti skráningardagur er 21.febrúar 2012.

Við minnum á keppni ungra sýnenda og heimilishunda sem fram fer á sýningunni.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsins í síma             533-1310       á opnunartíma og í gegnum netfangið rexhundar@rexhundar.is 
Eyðublöðin má nálgast hér fyrir neðan:


Sýningarþjálfanir eru dagana 6., 8. og 13. mars í Reiðhöll Gusts milli kl. 19:30 - 21:00

----------------------------------------------------------------------------------------

Auglýsingar í sýningarskrá

Félagsmönnum gefst kostur á að auglýsa í sýningarskrá félagsins, annaðhvort sína ræktun eða sína vöru.
Um er að ræða tvennskonar auglýsingar.
Án myndar: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.000kr.-
Með mynd: nafn ræktunar, heimasíða, símanúmer, netfang = 3.500kr.-

Upplýsingar á netfangi rexhundar@rexhundar.is

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------

Þeir sem áhuga hafa á að gefa bikara fyrir mars sýninguna vinsamlegast hafið samband við stjórn á netfangið rexhundar@rexhundar.is

--------------------------------------------------------------------------------------------------------
  • 1
Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 47
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 67113
Samtals gestir: 20522
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:13:02